Salur til leigu
Ef þig vantar sal til leigu fyrir veislu eða fund þá gæti þetta verið það sem þú leitar að.
SMELLTU HÉR FYRIR BÓKANIR OG NÁNARI UPPLÝSINGARSalur fyrir veislur, fundi, fyrirlestra og margt annað
Kiwanisklúbburinn Eldey er með aðstöðu í eigin húsnæði. Þar er að finna mjög hentugan sal fyrir ýmsa viðburði eins og t.d:
- Veislur
Tækifærisveislur, afmælisveislur, fermingarveislur, árshátíðir, giftingar, erfidrykkjur og margt margt fleira. - Fundi
Stjórnarfundir, húsfélagafundir, kynningar svo eitthvað sé nefnt. - Fyrirlestra
Fræðslufyrirlestrar, námskeið og fleira.
Hljóðkerfi, skjávarpi, baraðstaða
Salurinn hefur allt sem slíkur salur þarf að hafa. Hljóðkerfi (hægt að fá leigðan þráðlausan hljóðnema), skjávarpi og fínasta baraðstaða. Allt er til staðar fyrir borðhald fyrir allt að 100 manns. Hægt er að fá leigða dúka á borðin.
Staðsetning
Salurinn er í húsi Eldeyjar:
- Smiðjuvegi 13a
- 200 Kópavogi



